Berglind í West Hartford
sidasta vikan
held ad tad se kominn timi a nokkrar linur og jafnvel myndir. Mamma
var ad fara adan eftir ad hafa verid i heimsokn i taepa viku. Thad
var rosalega gott ad fa mommu adeins til ad dekra vid mig og minna
mig a thad hvernig verdur farid med mig tegar eg kem heim..... Ja
mamma thu mannst hvad eg sagdi. Vid vorum duglegar ad fara i mollid
herna thvi ad mommu leist svona lika vel a thad og gratbad um ad
fara thangad i hvert skipti sem ad timi gafst, og hvad gerir madur
nu samt til New York (mer tokst ad draga hana a harinu ur mallinu)
med lestinni. Hun var frekar stressud allan timan ad vid faerum ur
a vitlausum stad eda faerum i vitlausa lest. Vid komumst klakklaust
a afangastad sem var Hilton Millenium. Thad var frekar nice og gott
utsyni af 43 haed. Vid forum ut ad turistast fljotlega eftir ad vid
komum thvi ad engan tima matti missa. Vid rafudum eitthvad tharna
um naesta nagrenni, rifum upp kortid eins oft og vid gatum og
smelltum af myndavelinni (Halli thu hefdir sko skammast thin
brjalaedislega). A laugardeginum lobbudum vid svo fra hotelinu og
alla leid uppi Central Park sem er sko ekki neitt sma. A leidinni
vorum vid svo einmitt duglegar ad skoda kortid og benda i allar
attir (Hallgrimur taktu thetta til thin) og stoppudum thar sem ad
eitthvad merkilegt var ad sja. Nenntum nu samt ekki ad bida i 120
min plus eftir ad komast i Empire State enda var utsynid fra
hotelinu asaettanlegt. Thetta marathonlabb tok nanast allan daginn
og myndirnar sem eg set inn a eftir segja bara soguna. Mamma festi
min bestu moment a filmu, takk mamma. Um kvoldid hengum vid svo a
hotelinu og horfdum a SVU marathon. Svo um hadegid i gaer tokum vid
svo lestina heim ad boda paskaegg. Adalrettur helgarinnar voru svo
klarlega Dunkin Donut kleino sem ad voru bordadir i flest mal. I
morgun forum vid svo i sidasta skipti i mallid og versludum adeins
meira til ad fylla toskuna hennar mommu alveg orugglega. Thegar eg
keyrdi hana svo a rutustodina og fekk ad halda a toskunni ur
bilnum.... ja thad ma segja ad eg hafi litid ut fyrir ad vera ad
druslast med lik. Nokkur kilo. Mest liklega sem ad eg sendi hana
hitti Onnu enn og aftur i New York a fostudaginn. Silli minn eg
hlakka til. Svo a thridudagsmorguninn kem eg bara heim til ykkar
sem ad saknid min svo mikid. Halli aetlar ad vera svo godur ad koma
og saekja mig a vollinn. Thid hin kruttin bara berjist svo um mig,
mínum". Eitt ljótt blogg með engum bilum. Lífið gengur bara sinn
vanagang hérna, Lollipop, taka til, borða ís og hanga í mollinu. Ég
verð að fá mér annað áhugamál en að versla ég er ekki alveg svona
rík. Síðasta laugardag skellti ég mér yfir í næsta fylki til hennar
Lindu frænku og aðstoðaði hana við að flytja. Lori, Ron og Macy
voru líka þarna og við kepptumst við að rúlla dúlleríi og
skrautmunum inní bóluplast í metravís. Ég og Ron náðum saman á
hærra plani þegar kom að því að skipuleggja fataskápinn hennar
Lindu, en við flokkuðum fyrst eftir flíkum, ss peysur, stutterma
bolir, langermabolir osfrv og svo eftir litum, svart grátt hvítt.
Þvílík gleði og grenjandi hamingja þegar við vorum búin að þessu.
Nema hvað að herðartrén voru ekki alveg nógu mikiði í stíl. Við
fórum því í Wal Mart (fyrsta ferðin mín þangað) en Ron var mjög
spenntur því að þessi búð er alveg í sérstöku uppáhaldi hjá
honum...... eða ekki. Við fengum samt 90 stk hvít herðartré og
fórum heim til að setja punktinn yfir i-ið. Við höfum hugsað okkur
að fara út í fyrirtækjarekstur sem atvinnuskipuleggjendur. við erum
pros (pregnant retarded ostriges eins og Lori vildi kalla það).
Daginn áður hafði ég einmitt endurskipulagt tímaritahilluna hérna
heima, raðaði eftir tegund blaða (tísku, hönnun, matargerð), svo
nöfnum og loks í tímaröð, elsta neðst og svo nýjasta efst. Þetta
veitir mér gífurlega gleði. Ég á eitthvað bágt. Í gær fórum við
Brimar og Óli í parkinn í góða veðrinu í körfu. Ég er geðveikt
leikin í körfuknattleik, sem sýndi sig þegar ég tapaði svona
þrisvar í asna. Ég fór líka klædd tilbúin í íþróttaiðkun, í
gallabuxum og balletflats. Var samt flottari en óli sem var í
hvítum stuttbuxum og flíspeysu. Snýst allt um að vera pæja. Svo var
Kristín Halla í heimsókn hjá Brimari í gærdag og ég bakaði almond
cupkakes from scratch úr fínu cupkakes bókinni minni. Ég þarf sko
ekki Betty til að framkvæma kraftaverk í eldhúsinu. Eða kannski
ekki alveg kraftaverk. Þær voru samt alveg góðar. Meira hefur ekki
drifið á daga mína fyrir utan það að ég fann skyr.is í wholefoods.
á 2 og fimmtíu ein lítil dolla. Sambúðarverð á þessur hérna (þið
verslópíur vitið hvað ég meina). Það er samt gott. Svo er tíminn
minn bara að verða búinn hérna, mamma kemur eftir viku og verður
yfir páskana. Við ætlum til new york, en ekki hvað, og verðum í
tvær nætur á hilton millenum. nei sigrún ég er ekki að ljúga. Þegar
að mamma fer heim á mánudegi þá eru bara 4 dagar í að ég fari til
new york aftur, nei getur það verið, og hitti hana önnu sem að
brennur í skinninu að koma og eyða peningum í bestu vinkonu sína.
Afþví að ég verð nú líklega með svo lítinn farangur þá kaupir hún
eitthvað fallegt til að fylla upp í tómið í töskunni minni. Ræt.
Hlakka svo til að koma heim og hitta ykkur öll sem að eruð
vængbrotin af söknuði, Vilhelm Leví mig dreymir þig á hverri nóttu
hlakka svo til að knúsa þig. Þeir sem að ætla að skipuleggja
veisluhöld til heiðurs mér, vonandi gengur allt að óskum. ég býst
við glæsó..... þá er bara allt upptalið...... knús í klessu og ein
ást xxxx Berglind
til hamingju með afmælið!
þeim báðum til hamingju og Aron fær eina blauta tungu í eyrað frá
mér. Og eilífa lukku að eiga afmæli sama dag og goðið hann perez
beibí. lítið að frétta nema ég er að fá nýjan gullsíma! jibbí.
þúsund kossar og knús xoxoxo love you all
Halli i heimsokn
blogga um heimsoknina fra Halla og aetla svo ad setja inn
myndirnar sem eg er buin ad taka undanfarna daga. (vonandi
var myndavelin rett stillt pabbi). Eg er ad skrifa a
vinnutolvuna hennar Tinnu thvi ad makkinn neitar ad leyfa mer
ad gera bil i faerslurnar og thad er ekki isl lyklabord a
sidustu viku og for aftur heim i gaerkvoldi. Thad var rosalega
gaman ad fa hann og stjornast adeins med einhvern annan en Brimar.
Djok. Eg lagdi af stad allt of seint a midvikudaginn a flugvollinn
i Boston ad saekja hann og buin ad drekka allt of mikid kaffi. Eg
pissadi naestum i mig a leidinni thvi ad thad var svo langt a
pissustadinn. En thad hafdist og eg gat haldid leid minni afram.
Svo thegar eg var komin inn i Boston tha flaektist eg ovart i
vitlausan exit og endadi fyrir framan south station sem er
rutustodin. Eg hljop thar inn til ad bidja um directions a Logan i
einhverju securitydoti. Thad komu svona 3 kallar i gluggann bara
til ad hlaeja ad mer. Eg filadi thad rosalega vel, magnad fyndid ad
villast og spyrja til vegar. Svo thegar their hofdu jafnad sig af
hlaturskastinu fekk eg leidbeiningarnar og keyrdi retta leid a
flugvollinn thar sem ad Halli greyid var buin ad bida. Bida lengi
eftir mer. A leidinni heim bladradi eg svo mikid ad eg for tvisvar
inn a vitlausa freeway og vid vorum i ruglinu tharna ad flaekjast a
milli I 84 og 91 i nokkurn tima. A endanum komumst vid svo heim sem
betur fer. Vid forum bara ad sofa fljotlega eftir thad enda klukkan
ordin frekar margt ad islenskum tima. Daginn eftir vaknadi Halli
dalitid a undan mer enda ekki vanur allri birtunni herna a
morgnanna. Vid forum a faetur og eg dreif Brimar i Lollipop. Tinna
kom svo heim fra Indlandi seinna um morguninn og vid eyddum deginum
bara herna heima i ekki neitt. Eda ju ad horfa a ANTM. Thad er nu
ekki omerkilegt. Um kvoldid keyrdum vid svo i sma tima i bae sem
nu ekki neitt spes svo ad vid forum bara og bordudum kvoldmat a
itolskum veitingastad. Eg vard sodd af thvi einu ad horfa a matinn
thannig ad vid forum heim med mikinn afgang. Herna fa allir
doggybag fyrir thad sem er afgangs. Eg henti thvi i ruslid adan.
Svo var thad bara heim ad sofa eins og sonnum ellilifeyristhegum
rutu til New York. Thegar vid vorum buin ad skutla Brimari i
Lollipop tha drifum vid okkur heim ad taka okkur til og hringja a
taxa til ad komast a rutustodina. Hann kom nokkru sidar og skutladi
okkur thangad a sidustu stundu. Vid fengum mida badar leidir og
forum svo ut i ruturodina. Loksins kom svo rutan fra Springfield
med fullt af folki svo ad vid gatum ekki sitid saman. Eg sat
hlidina a einhverjum feitum, hvitum gaur i skopparafotum sem tok
eitt og halft saeti. Minnti samt pinu a hillbilly tho ad hann
klaeddi sig eins og svarti madurinn. Toff. Mer tokst samt ad sofna
vid hlidina a honum, yfir biomyndinni sem var synd a leidinni. Hun
var um upphaf rutufyrirtaekisins og het thvi spennandi nafni What
the deaf man heard. Geeeeedveik mynd. Svo eftir taepa 3 tima af
thessu komumst vid til New York. Tokum taxa fra rutustodinni a
hotelid. Vitlaust hotel. Ja vitlaust hotel. Attum ad vera downtown
en ekki i midtown. Eftir thetta kludur forum vid ut og veifudum i
annan taxa (sem eg er rosalega god i an grins) og forum og tekkudum
okkur inn a rett club quarters hotel vandraedalaust. Fengum
herbergi a 15 haed sem var mjog fint bara. Akvadum ad soa engum
tima svo ad vid forum ut og bordudum, keyptum kort af borginni og
byrjudum ad turistast. Eg elska ad rifa upp kortid, opna thad alveg
og ryna i thad eins og faviti thvi ad tha skammast Hallgrimur sin
einstaklega mikid. Vantar bara bumbubudduna. Tharna i stuttu
gongufaeri fra hotelinu var Wall Street svo ad vid forum thangad og
skodudum kauphollina, lobbudum ut ad sjo og saum grilla i
Frelsisstyttuna, lobbudum svo upp Broadway, med stoppi a Starbucks
en ekki hvad, og upp ad Ground Zero. Thar eru miklar framkvaemdir i
gangi svo ad thad var nu ekki mikid ad sja nema spjold sem eru
timeline med atburdunum 9/11. Dalitid skrytid ad standa tharna. Eg
var reyndar buin ad sja thetta ofanfra af 33 haed af Hilton en tha
var myrkur. Svo toltum vid bara til baka a hotelid og pontudum room
service i kvoldmat. Thad var svo kalt ad vid nenntum ekki ut. Sma
upp i SoHo og skoda i budirnar. A leidinni rakumst vid a City Hall
of NYC svo ad vid stoldrudum vid i sma stund og eg tok nokkrar
myndir. Vid eyddum svo bara deginum i SoHo ad versla. Mikid af
flottum budum oja. Bordudum hadegismat a trodnum McDonalds og
heldum svo afram ad sjoppa. Var ordid toluvert heitara en daginn
adur tannig ad eg gat bara verid a stutterma. Reyndar var svo heitt
i matunarklefunum ad thad gerdi manni erfitt fyrir. A leidinni til
baka a hotelid stoppudum vid a Canal street thar sem ad mer var
bodid ad kaupa fake toskur. Thad var magnad ad sja hvernig thetta
virkar. Allir sem eru ad selja eru i svortum north face stokkum og
svo thegar eg sagdi ja vid ad kaupa sagdi konan eitthvad a
kinversku i talstodina ja talstodina sina og for med okkur inn i
hus, inn gang og upp stiga thar sem ad var fullt af litlum
geymslum. Hun for med okkur inn i eina thar sem ad madur gat valid
thad sem madur vildi. Eg valdi Coach ferdatosku og chanel tosku.
Pruttadi, modgadi hana og svo nadum vid samkomulagi. Tha mattum vid
ekki fara thvi ad loggan var fyrir utan nidri. Fullt af logbrjotum
var haldid inni thar til ad merki var gefid i talstodina. Tha vorum
vid frjals. Uppa hoteli horfdum vid a departed sem ad kostadi
handlegg og adra lifrina i mer og gerdum okkur til fyrir ad fara ut
ad borda. Forum a gedveikt flottan stad i meatpacking sem ad heitir
Spice Market. Er eitthvad svona asiskt fusion dotari. Attum pantad
kl 9 en komum adeins fyrr en thad svo ad vid bidum a barnum i
smastund adur en ad bordid okkar var tilbuid. Thetta er svo flottur
stadur og maturinn er magnadur ad eg maeli med ad allir profi.
Thordi samt ekki ad taka myndir. Dasemd. Svo var thad bara taxi
klukkunni herna um klst um nottina. Daylight saving hja kananum eda
eitthvad thannig. Vid pokkudum saman, tjekkudum okkur ut og settum
toskurnar i geymslu. Tokum svo leigubil upp ad empire state til ad
dast ad henni fra jordinni nenntum ekki ad bida i klukkutima til ad
komast upp. Akvadum frekar bara ad labba a Times Square og skoda
thar. Eg myndadi skiltin og svo forum vid inni staersu ToysRus i
USA sem er med parisarhjoli i midri bud. Eg tok myndir thar eins og
brjalud vaeri. Thegar eg sa barbideildina var eg dalitid bitur uti
mommu fyrir ad hafa ekki farid med mig thegar eg var 7. Skamm
mamma. I stadinn verd eg ad fara med hana. Kiktum i Virgin
megastore og lobbudum svo uppad Rockafeller Center, tokum nokkrar
myndir og forum svo a 5th avenue. Eg tok myndir af Gucci, Louis
Vitton og fleiru skemmtilegu sem tid faid ad sja a myndunum. Svo
var bara kominn timi til ad na i toskurnar og fara a rutustodina. I
thetta skiptid fengum vid saeti saman og keyrdum ut ur borginni i
gegnum Harlem. Gledi. Thegar vid komum heim forum vid ut ad borda
og svo i stop and shop ad kaupa ben. og jerry. Godir saman. Forum
heim ad horfa a dvd en Halli sofnadi. A manudaginn skellti eg mer i
thrif og svo lobbudum vid med Brimar nidri bae ad kaupa is. i goda
vedrinu og solinni. Thad er ad koma vor herna. Naest a dagskra var
Target sem ad slo i gegn med hreinlaetisvorum, barnaskodeildin i
Sports Authority og svo mollid. Keyptum sma til ad senda heim med
Halla og forum svo ad borda a Ruby Tuesday. Jommi. Forum svo heim
og horfdum a Babel sem mer fannst nu bara nokkud god. A
tridjudaginnn var svo kominn timi fyrir Halla ad pakka saman ollu
sinu i hermannatoskuna hans pabba sem ad gleypti vid ollu sem i
hana var sett. Um 4 keyrdi eg hann svo a rutustodina og kvaddi hann
stiga hiti. Grenjandi hamingja. Vid Brimar, Salaar, mamma hans
Salaar og litli brodir forum i parkinn i sma skemmtilegheit
seinnipartinn. Svo er eg bara buin ad vera ad skrifa thessa faerslu
i svona 3 klukkutima. Thid erud frekjur. Set svo inn myndirnar i
njú jork
sjóðheitt slúður og spennandi fréttir þegar við snúum aftur. ekki
missa af næsta þætti í spennuþáttaröðinni!! one love til ykkar
allra! Berglind og Halli sem blogga sem par
Subbulegi-Steve
Áðan skrapp ég á pósthúsið til að senda pakka til Íslands. Ekki að
það sé eitthvað mikið mál en ég var ekki alveg með á hreinu hvar
pósthúsið er svo að ég ákvað að spurja til vegar. Þar sem að fólkið
hérna er svona agalega kammó stoppaði ég bara næsta einstakling sem
ég sá. Nokkrum andartökum seinna kom í ljós að það var Steve.
Plebbalegi Steve. Jáh hér kemur samtalið: B: excuse me, could you
tell me where the post office is? S: uuuuhm the post office (hugsar
sig um) I'm drawing a blank here, but it think it is down this way.
Althogh I don't want to send you the wrong way. B: oh its ok I
think it is on the same street as Starbucks. S: are you not from
around here? B: No I´m from Iceland. S: Oh Iceland. Have you been
here for a long time? B: About a month. S: How do you like it here?
B: I like it a lot, I love it. S: Oh and are you staying for long
time. B: No I am on a 90 day limit. S: You are so beautiful you
should try to stay longer, we need more people like you. B:
(vaaaaaandræðaleg) thank you. S: My name is Steve B: You can
probably not say my name. S: I’m good with that stuff, tell me. B:
(ó men hvað þetta er hallærislegt) Berglind. S: Parklin! Yes. B:
(fáviti) yes that’s right. S: So what are you doing here? B: I am
babysitting. S: do you like it? B: (farin að hugsa hvort það sé
eðliegt að spjalla svona mikið við ókunnuga) Yes I like it very
much. S: (farinn að glápa í líklega áttina að pósthúsinu) I am
going to að meeting now, will you be here for a while? B: (held að
ég eigi að bíða á meðan hann fari á fundinn svo hann geti fylgt mér
á pósthúsið en nei….). S: Because I was wandering if you wanted to
meet me later for coffie. B (algörlega í mestu kleinu lífs míns)
No, I’m sorry I can’t, I’m just dropping this package off.
(díseeeeees kræst er hann ekki að djóka!). S: OK well good luck at
the post office. B: thank you so much bye. (hálfhleyp í burtu).
Kannski er þetta normið hérna en vá hvað mér fannst þetta
kjánalegt. Hann var líka örugglega 35! elín, kleinusnúðurinn minn,
þessi færsla er tileinkuð þér! ein ást Berglind
nýjar myndir
Ferðasagan: Búðir, búðir, búðir. amen p.s. Halli, ég elska þig!
á lífi
hamast við að blogga til að allir séu ánægðir. Síðustu helgi vorum
við bara heima og ég fór eins og vanalega í mollið á laugardaginn.
Fór í útsöluhornið í Forever 21 og keypti mér 5 flíkur og 3 armbönd
á 35 dollara. Besta útsala sem ég hef lent í. Svo keypti ég líka
dvd diska fyrir Óla sem eru svoooooo fyndnir. Foamy er góður. Í
vikunni er búið að vera frí í Lollipop svo við Brimar erum búin að
vera dugleg við að hanga heima á náttfötunum. Á mánudaginn fór hann
nú samt á playdate hjá Salaar og skemmti sér vel. Á þriðjudaginn
kom svo Salaar í heimsókn hingað á meðan mamma hans fór til læknis.
Það var svaka fjör hjá strákunum og þeir rústuðu sólstofunni
algjörlega. Svo lenti ég í því í vikunni að þurfa að velja úr
dömubinda og túrtappahillunni í búðinni, úrvalið hérna er svo
brjálæðislegt að það gerir manni erfitt fyrir. En það bætti úr skák
að í sömu búðarferð keypti ég Oreoís. Hann er góður. Svo góður. Í
gær ryksugaði ég svo og þurrkaði af á meðan Brimar fór út í garð að
leika sér. Eftir hangs fram eftir degi drifum við okkur svo út í
bíltúr og fórum í Sports Autority að kaupa jógamottu og skoða hitt
og þetta. Í leiðinni fórum við í Borders sem er bókabúð að kaupa
afmælisgjöf handa Óla sem átti afmæli í gær. Þar er hægt að velja
sér endalaust af bókum og blöðum og setjast svo niður á kaffihúsið
og skoða það sem hugurinn girnist. Brimari langaði svo í hot
chockolate svo að við settumst aðeins niður og trufluðum hitt
fólkið. Hann vildi nefnilega sleikja rjómann ofanaf bollanum en þá
klíndi hann því í sig, mig og fötin sín. Hitt fólkið fílaði okkur
tæplega. Svo þurtum við að drífa okkur heim að pakka inn gjöfunum.
Óli fékk æfingabol frá Brimari, æfingabekk og lóð frá Tinnu og bók
frá mér. Eftir pakkaæsinginn sem að olli því að Brimar hagaði sér
eins og hann væri á örvandi fórum við út að borða á kínverskan
veitingastað í Glastonbury. Við áttum pantað borð en komum allt of
seint vegna þess að karlmenn biðja ekki um directions þegar þeir
vita ekki hvert þeir eru að fara. En við komumst á réttan stað á
endanum. Ég fékk fekar sterkt karrý eitthvað en það var gott.
Brimar æddi um veitingastaðinn að taka myndir af öllu, frá fiskunum
í búrinu til þjónanna. Það var rosalega gaman hjá okkur,
sérstaklega þegar Óli var farinn að upplýsa uppá hvað hann skrifar
til að koma Tinnu í klippingu.... Þjónarnir héldu að við værum
rússnesk. Já ég er svo kúluvarparaleg djísess. Þegar við komum heim
og ég alveg í spreng þá vorum við lyklalaus. Hummerinn er í viðgerð
og húslyklarinir eru á bíllyklunum en þar sem á við vorum á
lánshummer þá komumst við ekki inn. Ég skottaðist í bakgarðinn að
pissa áður en við keyrðum til Tóta og Álfhildar að ná í aukalykla.
Loksins komumst við inn svo að ég blaðaði aðeins í Vogue og fór svo
að sofa. Í morgun erum við svo bara búin að vera að dúlla okkur og
ég að undirbúa mig andlega fyrir ferðina í Toys R us sem ég lofaði
í gær. Um helgina ætla ég svo að heimsækja Lindu og "reyna" að
kíkja aðeins að versla. Ætlum svo kannski að kíkja í heimsókn til
Maine. Ég reyni að taka myndir eins og vitleysingur og setja þær
inn sem fyrst. Svona fyrst ég er búin að læra það. Verður vonandi
minna af kökumyndum í þetta skiptið. Svo á sunnudaginn fer Tinna
til Indlands í 10 daga svo við verðum bara 3 í kotinu. Það er svo
komið í ljós að ég verð aðeins lengur hérna í Ammríku en til stóð
eða til loka mars eða byrjun apríl. Ég er svo fáránlega skemmtileg,
fyndin og æðisleg að þau vilja eðlilega ekki að ég fari. Þannig að
þið sem ætlið að heimsækja mig getið farið að bóka. Tútúllú Skotta
P.S. svo er síðasti O.C. þátturinn í tívíinu í kvöld. Ég verð hérna
með titsjúið sorgmædd yfir því að þetta sé síðasti þátturinn EVER!
loksins myndir
að hafiði samband uppá lykilorðið eða biðja um það í kommentunum.
nýjar fréttir
fyrrinótt byrjaði aðeins að snjóa og það var smá föl á götunum í
gærmorgun. Svo kom pínu meiri snjókoma og þá fór allt í steik,
skólunum var lokað og fólk keyrði um göturnar á 5 mph með
hazardljósin á. Ég sem að er náttúlulega á jeppa og svo veðruð (á
leiðinni að verða veðraðari á meðan þú ert heima í hitastigi pabbi,
já ekki í mínus 30 í Afghanistan lengur) fannst þetta nú ekki mikið
mál og brunaði með Brimar í Lollipop. En NEI hann var lokaður. Ég
var svo hneyksluð að ég vissi ekki hvert ég ætlaði. Svo ég brunaði
með Brimar með mér í klippingu. Gaurinn sem klippti mig var ekkert
að taka stjórnina neitt eins og ég ætlaðist til, setti einhverjar
ósýnilegar strípur í mig og krullaði mig svo með bursta svo ég fór
út eins og amma einhvers alltof mörgum dollurum fátækari.Á meðan
dvölinni stóð tókst Brimari líka að rífa niður einhverja
bara að sækja takeout en við enduðum á japansk/kóreskum fusion stað
og ég var á náttfötunum. Stórkostlega smart. Og stígvélum.
Staðurinn hét Ichiban eins og japanski varaliturinn sem Joey í
Friends auglýsti. Ég flissaði aðeins yfir því á frekar miklum
bömmer samt þarna innan öll pörin á rómantískum
Valentínusardagsstefnumótum. Eftir að hafa flett í gegnum
matseðilinn taldi Óli mig á það að smakka sushi. Ég ákvað að skella
mér á það og það kom bara skemmtilega á óvar. Var reyndar búin að
drekka í mig smá kjark. Þjóninn okkar var algjört bíó. Svona
steríótýpu Japani með útstæðar tennur, gleraugu, alltaf að hneigja
sig, segja thank you og var fáránlega lélegur í ensku. Kom tvisvar
sinnum með eitt glas af hvítvíni þegar við vorum búin að panta eina
vinnuna og koma svo Brimari í Lollipop. Lollipop byrjar kl 9 en
útaf "öllum snjónum" byrjaði hann kl 10. Við fórum þá bara á Dunkin
Donuts og ég gaf barninu kleinuhring í morgunsárið. Skutlaði honum
svo loksins og fór heim að horfa á 24. Þegar við komum heim var ég
orðin svo leið á að detta nánast alltaf á hausinn í tröppunum fyrir
utan að ég fór og náði í skófluna. Snjórinn hérna er frekar harður
svo hamaðist á helvítis snjónum í minikjól og sumarjakka eins og
fáviti. Á endanum náði ég þessu í burtu. Ákveðnin er mér stundum í
Og horfa á skrípó og borða sykrað popp. Ógeðsleg leðja. Ég fer til
Lindu í heimsókn um þarnæstu helgi og verð í 2 nætur. Þá gæti
leiðbeiningar um hvernig ég á að athafna mig á
New York
við öll til New York því að Tinna var að hitta vinkonur sínar. Við
lögðum af stað um hádegið og vorum komin um 2 eða 3 leytið til
borgarinnar. Við fórum til Soho til að skila Tinnu af. Svo keyrðum
við aðeins um og lögðum bílnum í Meat Packing District. Því miður
rakst ég ekki á Samantha. Við töltum aðeins þar um, fórum í
verslunarmiðstöð sem var gerð upp, hún er frekar svona hrá, húsið
var yfirgefið lengi. Þar voru aðallega veitingastaðir, bakarí og
svo danskennsla bara á miðjum gangi. Frekar fyndið svo að ég
smellti af einni mynd fyrir ykkur heimtufrekjurnar. Eftir að við
löbbuðum þar í gegn fórum við í department store sem heitir
Jefferey's. Þar inni var svo flott að ég var frá mér numin af
fögnuði. Þarna voru Manolo Blahnik, Jimmy Choo, Gucci, Prada og
síðast en ekki síst Christian Louboutain skór. Þá lá við að ég
þyrfti að þerra tár af hvörmum mínum, þvílík fegurð og
glæsilegheit!!!!! Ég fór þaðan út svífandi á rósrauðu skýi. Svo
löbbuðum við aftur í bílinn og keyrðum um borgina. Við keyrðum
Broadway, á Times Square, 5th Avenue og svo meðfram og í gegnum
Central Park. Þá var klukkan orðin sirka 5 svo að Óli var svo góður
að keyra mig aftur í Soho því mig langaði að skoða aðeins í búðir.
Ég fór í svona ódýrari Armani búð og keypti nú ekkert handa mér
heldur nokkuð góðan jakka fyrir Halla. Hann verður nú eitthvað að
fá fyrir sinn snúð fyrst að ég var svona vond að fara frá honum. Ég
rápaði svo aðeins þarna um og keypti mér aðeins fleiri nærbuxur (ég
er búin að kaupa nokkuð margar hérna) því það er nú nauðsyn. Það
var frekar kalt þannig að ég tók stuttan hring í Bloomingdales og
skoðaði Diane Von Furstenberg kjóla sem var ekki slæmt. Svo hringdi
ég í driverinn og beið á Starbucks eftir að þau kæmu. Þá fórum við
og Brimar eyddum kvöldinu á 33 hæð með útsýni yfir Ground Zero (og
alla borgina)á meðan Tinna og Óli fóru út að borða. Þar pöntuðum
við ís í room service og gláptum á risa flatskjá. Rúmlega eitt komu
svo Tinna og Óli og sóttu okkur og við keyrðum heim. Ég gerði mitt
besta að taka myndir af þessu helsta fyrir ykkur en það var dálítið
erfitt úr bílnum.
ætlar með mig til Maine sem er víst shoppers heaven. Sem er ekki
slæmt fyrir okkur Molly og Molly 3rd. Mig hlakkar voðalega mikið
Nefsprey og Crest Whitestrips
endilega fá eitthvað nýtt. Hér er alltaf sami skítakuldinn og ég
vil kenna honum um kvefið og leiðindin sem eru að pirra mig. Vegna
þess þá skellti ég mér í apótek í gærmorgun eftir að ég var búin að
skutla Brimari á Lollipop. Ég fór niður á Farmington og fór inn. Þá
byrjaði leitin að kvefhillunni sem ég fann eftir nokkra leit. Þá
kom að því að velja nefsprey.... og það var ekki auðvelt! Grilljón
tegundir af spreyjum í ýmsum stærðum og gerðum. Þegar ég var búin
að velta þessu fyrir mér nokkra stund þá valdi ég bara eitthvað sem
kostaði ekki mikið - hagsýnin alltaf. Svo fór ég á stúfana til að
finna oral hygene lane til að athuga hvað crest whitestripes kostar
þar. Þar var á tilboði CWS preminum og það kostaði held ég 29
dollara. Ég hafði það svo bak við eyrað þegar ég fór í Stop and
Shop seinna um daginn með Brimari að kaupa nesti og fleiri
mikið ráp milli hillna þar þá fann ég þetta loksins og þar kostuðu
herlegheitin um 30 dollara. Þar hefurðu það Elín, ég kaupi Crest í
apótekinu. Í gærkvöldi horfðum við svo á Little Miss Sunshine og ég
flissaði nú meira en ég bjóst við. Hún kom mér nokkuð á óvart og
hún var hin besta skemmtun. Fór í framhaldi af því að hugsa um The
Office og þáttinn sem Michael átti afmæli, þá hló ég inní mér og
smá utaná mér. Respect the Birthday man! Svo í dag fór ég á
nissaninum með Brimar og ég hélt að ég yrði bensínlaus á leiðinni.
Svo kom í ljós að þetta eru bara eiginleikar bílsins því hann er jú
bilaður. Fer í viðgerð á morgun. Eftir að ég fór með Brimar þá kom
ég heim og þreif baðherbergið uppi. Á tímabili var ég komin með
eyrnapinna við þrifin. Anna ég veit að þú elskar hvað ég er mikið
neat freak!! Svo moppaði ég, setti í uppþvottavélina og
þvottavélar. SpEnnó. Núna er klukkan hjá mér að verða 6 og við
ætlum út að borða í kvöld, best að fara og gera mig til! Tútúlú
p.s. ég veit ekki alveg hvernig þetta er með að gera bil á milli
lína, það virðist ekki virka neitt svo vel. Er ennþá að completa my
mac skills.
Ég hóstaði.......
og Brimar að labba niður í bæ á Starbucks. Nóttina áður hafði
Brimar reyndar verið eitthvað slæmur í maganum og ældi einusinni en
var svo bara hress um morguninn. Við fórum út klædd eins og
heimskautafarar því það er frekar kalt núna. Þegar við komum á
Starbucks þá var frekar mikið að gera svo að við plöntuðum okkur
svona aðeins í kringum borð sem var búið að taka frá einn stól.
Tinna kunni ekki alveg við að setjast bara við borðið hjá manninum
svo að Brimar og hún sneru hálfpartin frá því en kaninn er nú svo
kurteis og allt það að hann sagði að Brimar mætti nú aldeilis sitja
við borðið hjá sér. Maðurinn var með te, NY times og kökusneið.
Brimar fylgdist mjög grannt með honum og þegar hann var nýbúinn að
kreista tepokann og var rétt að byrja á teinu og búinn að taka einn
bita af teinu þá frussaðist kakó útúr Brimari yfir borðið, teið,
kökuna og blaðið hjá manninum. Fyrst hélt ég að Brimar hefði gubbað
yfir manninn og maðurinn hélt það líka. Tinna fór og náði í tissjú
og spurði svo Brimar hvað hefði eiginlega komið fyrir. Eina sem
hann gat sagt var: Ég hóstaði bara. Aumingja maðurinn hélt að það
hefði verið ælt yfir sig, það var allt í kakói. Tinna bauðst til að
kaupa handa honum nýtt te og nýja köku en hann afþakkaði það nú.
Starfsfólkið sá samt um það að gefa honum nýtt. Tinna sorríaði
okkur í allar áttir og svo komum við okkur bara út. Við vorum
næstum farnar að hlæja beint upp í opið geðið á greyið manninum og
hlógum alla leið heim. Ég hlæ ennþá bara við að skifa þetta. Muniði
sem sagt að það er ekki gott að hósta með munninn fullan af kakói!!
Annars er lítið að frétta, nema við fórum í bíó í gær á The pursuit
of happyness með Will Smith. Ágæt mynd en enginn
óskarsverðlaunaleikur hjá honum. Svo fórum við á McDonalds í fyrsta
skipti síðan ég kom. Hann var ágætur. Svo í morgun þegar ég fór út
í bíl til að keyra Brimar í Lollipop þá var 12 gráðu frost,
ógeðiskalt. Og svo villtist ég á leiðinni en þar sem að ég er svo
bráðvel gefin þá rataði ég samt á Lollipop. Gullstjarna fyrir mig.
Kaldar kveðjur frá fyrirheitna landinu Berglind
Mollið
í towninu. Ég fór þangað í gær og ó mæ hvað það var mikið af
fallegum búðum, ég íhugaði að flytja bara í Victoria's Secret. Ég
fékk bara að ráfa ein í einn og hálfan tíma þegar við Óli vorum
búin að fá símakort fyrir mig. Það virkar reyndar bara innan
Bandaríkjanna svo að ég er ennþá bara með íslenska númerið í mínum
síma. Hann er læstur svo að cingular kortið virkaði ekki í honum
þannig að mér var bara reddað öðrum síma fyrir ameríska kortið. En
já mollið var mjög skemmtilegt og allskonar flottar búðir eins og
ég ekki mátið að kíka í Baby Gap fyrir hann Villa minn, só kjút.
Eftir allt þetta var farið að rjúka aðeins úr kortinu svo að ég
ákvað að drífa mig heim. Þegar ég kom heim þá var kvöldmatur og svo
bara fór ég að sofa um 10 leytið, ég er eitthvað voða lengi að
venjast mismuninum á tímanum. Þessi ferð mín í mollið er sem sagt
hápunktur undanfarinna daga og ekki frá mörgu öðru að segja nema á
föstudaginn bökuðum við Brimar Betty. Það þurfti náttúrulega að
kaupa í það svo við fórum í Stop and Shop og leituðum mikið þar til
að rétta hillan fannst. Þetta var í fyrsta skipti sem ég baka í
ofni sem er stilltur á farenheit svo að kakan var eitthvað sló að
bakast svo að eftir hækkun upp á 400 F og tæpan klukkutíma í
ofninum kláraðist þolinmæði mín. Kakan var samt góð með BC
chockolate frosting. ég á framtíðina fyrir mér sem ammrísk
húsmóðir! Dagurinn í dag er ekki ákveðinn neitt, klukkan er bara
hálfellefu hjá mér núna, svo að ef að ég fer á vit ævintýranna þá
skrifa ég æsispennandi færslu um það sem fyrst. Sakna allra á
Íslandi fullt og sendi kannski pósta á ykkur VIP í kvöld. Berglind
(Molly the third)
Fyrstu dagarnir
Fyrir utan ógeðis landamæraverðina sem tóku mig í yfirheyrslu þegar
ég kom. Ég var spurð FÁRÁNLEGRA spurninga og höfðu spes áhuga á því
hvort ég væri gift. Þeim fannst hringurinn minn víst eitthvað
dularfullur. Fífl og fávitar!!!!!! Anyway þá komst ég loksins í
gegn og Tinna og Brimar tóku á móti mér á flugvellinum í Boston og
svo keyrðum við í tæpa 2 tíma hingað "heim". Við fórum í búð sem
heitir Whole foods market sem selur bara lífrænt ræktaðan mat. Án
efa laaaaang flottasta matvörubúð sem ég hef farið í. Þegar ég var
búin að taka upp úr töskunum og svona þá fór ég að sofa þó að
klukkan hafi bara verið um hálf tíu hér. Erfiður þessi
tímamismunur. Svo í gær þá vaknaði ég rétt fyrir átta og við Tinna
fórum með Brimar á Lollipop en það er leikskólinn hans. Svo var
stefnan tekin á New York þar sem að við eyddum deginum. Þegar við
komum þangað átti Tinna fund svo að á meðan þá ráfaði ég af stað í
geðveikt flott og ég dundaði mér þar þangað til ég þurfti að labba
til baka á hótelið sem Tinna var á fundi. Þá tókum við taxa til
Soho (held ég) þar sem við hittum vinkonu Tinnu. Eftir það var
klukkan orðin frekar margt en þar sem að við rákumst á Urban
Outfitters á leiðinni að veifa á taxa varð ég nú að kíkja þar inn
fyrir þig Elín mín. ómægod búðin var sko awesom og einn
afgreiðslugaurinn var voða hrifinn af gleraugunum mínum. Ég keypt
eitthvað smotterí þar og svo tókum við leigubíl í bílastaðahúsið
sem bíllinn var. Við keyrðum heim, borðuðum og svo fór ég bara að
lúra. Í morgun fórum við svo með Brimar í Lollipop og ég keyrði
Hummerinn heim. Ég er góður bílstjóri já. Þegar ég kom heim fór
Tinna upp að vinna og ég tók til, tók úr uppþvottavélinni og
ryksugaði. Það er víst ekki mikið meira að frétta í bili og ég
reyni svo að fara á msn í kvöld. bæjó í bili Berglind