Berglind í West Hartford

22.02.2007 18:02:05 / berglind_m

á lífi

Jább ég er á lífi, þið eruð svo kröfuharðir lesendur að ég verð að hamast við að blogga til að allir séu ánægðir. Síðustu helgi vorum við bara heima og ég fór eins og vanalega í mollið á laugardaginn. Fór í útsöluhornið í Forever 21 og keypti mér 5 flíkur og 3 armbönd á 35 dollara. Besta útsala sem ég hef lent í. Svo keypti ég líka dvd diska fyrir Óla sem eru svoooooo fyndnir. Foamy er góður. Í vikunni er búið að vera frí í Lollipop svo við Brimar erum búin að vera dugleg við að hanga heima á náttfötunum. Á mánudaginn fór hann nú samt á playdate hjá Salaar og skemmti sér vel. Á þriðjudaginn kom svo Salaar í heimsókn hingað á meðan mamma hans fór til læknis. Það var svaka fjör hjá strákunum og þeir rústuðu sólstofunni algjörlega. Svo lenti ég í því í vikunni að þurfa að velja úr dömubinda og túrtappahillunni í búðinni, úrvalið hérna er svo brjálæðislegt að það gerir manni erfitt fyrir. En það bætti úr skák að í sömu búðarferð keypti ég Oreoís. Hann er góður. Svo góður. Í gær ryksugaði ég svo og þurrkaði af á meðan Brimar fór út í garð að leika sér. Eftir hangs fram eftir degi drifum við okkur svo út í bíltúr og fórum í Sports Autority að kaupa jógamottu og skoða hitt og þetta. Í leiðinni fórum við í Borders sem er bókabúð að kaupa afmælisgjöf handa Óla sem átti afmæli í gær. Þar er hægt að velja sér endalaust af bókum og blöðum og setjast svo niður á kaffihúsið og skoða það sem hugurinn girnist. Brimari langaði svo í hot chockolate svo að við settumst aðeins niður og trufluðum hitt fólkið. Hann vildi nefnilega sleikja rjómann ofanaf bollanum en þá klíndi hann því í sig, mig og fötin sín. Hitt fólkið fílaði okkur tæplega. Svo þurtum við að drífa okkur heim að pakka inn gjöfunum. Óli fékk æfingabol frá Brimari, æfingabekk og lóð frá Tinnu og bók frá mér. Eftir pakkaæsinginn sem að olli því að Brimar hagaði sér eins og hann væri á örvandi fórum við út að borða á kínverskan veitingastað í Glastonbury. Við áttum pantað borð en komum allt of seint vegna þess að karlmenn biðja ekki um directions þegar þeir vita ekki hvert þeir eru að fara. En við komumst á réttan stað á endanum. Ég fékk fekar sterkt karrý eitthvað en það var gott. Brimar æddi um veitingastaðinn að taka myndir af öllu, frá fiskunum í búrinu til þjónanna. Það var rosalega gaman hjá okkur, sérstaklega þegar Óli var farinn að upplýsa uppá hvað hann skrifar til að koma Tinnu í klippingu.... Þjónarnir héldu að við værum rússnesk. Já ég er svo kúluvarparaleg djísess. Þegar við komum heim og ég alveg í spreng þá vorum við lyklalaus. Hummerinn er í viðgerð og húslyklarinir eru á bíllyklunum en þar sem á við vorum á lánshummer þá komumst við ekki inn. Ég skottaðist í bakgarðinn að pissa áður en við keyrðum til Tóta og Álfhildar að ná í aukalykla. Loksins komumst við inn svo að ég blaðaði aðeins í Vogue og fór svo að sofa. Í morgun erum við svo bara búin að vera að dúlla okkur og ég að undirbúa mig andlega fyrir ferðina í Toys R us sem ég lofaði í gær. Um helgina ætla ég svo að heimsækja Lindu og "reyna" að kíkja aðeins að versla. Ætlum svo kannski að kíkja í heimsókn til Maine. Ég reyni að taka myndir eins og vitleysingur og setja þær inn sem fyrst. Svona fyrst ég er búin að læra það. Verður vonandi minna af kökumyndum í þetta skiptið. Svo á sunnudaginn fer Tinna til Indlands í 10 daga svo við verðum bara 3 í kotinu. Það er svo komið í ljós að ég verð aðeins lengur hérna í Ammríku en til stóð eða til loka mars eða byrjun apríl. Ég er svo fáránlega skemmtileg, fyndin og æðisleg að þau vilja eðlilega ekki að ég fari. Þannig að þið sem ætlið að heimsækja mig getið farið að bóka. Tútúllú Skotta P.S. svo er síðasti O.C. þátturinn í tívíinu í kvöld. Ég verð hérna með titsjúið sorgmædd yfir því að þetta sé síðasti þátturinn EVER!
Anna skrifaði
Ohhh loksins nýtt blogg;) var farin að óttast um þig litla.. Gaman að lesa þetta, hmm... ætti maður að skella sér í reisu til NY þá??? fyrst að þú verður þetta lengi.... :) En ómæómæ sorglegt með OC..... Jæja farin að spjalla við þig á msn.. og Óli! Pant fá lánaða dvd diskana með Foamy!!! Bara fyndið
Mamma skrifaði
Uff gott að heyra frá þér. Ég var að velta því fyrir mér hvort þú værir búin að gleyma okkur hérna heima á klakanum. Þú dast heldur betur í lukkupottinn að fá að spreyta þig þarna í Ameríkunni. Nú er komið að því að sanna sig og sjá um heimilið og Brimar í 10 daga án Tinnu. Góða skemmtun um helgina ég bið að heilsa Lindu og öllum í Maine. Farðu varlega með kortið og passaðu að brenna þig ekki á því. Þín mamma
Eva skrifaði
jájá... og þú þykist vera að vinna þér inn stað í ættartéinu hans Vilhelms.... puffff!!!! Hva, viltu ekki bara flytja til Ameríku???????
Sía frænka skrifaði
Skemmtu þér vel í Charlton og Main, veit að það verður stjanað við þig eins og sanna prinsessu! Hlakka til að lesa bloggið þitt eftir þá ferð. Bið að heilsa frænku og Cliff. Kveðja Molly jr.
Elín skrifaði
oh, Berglind mín, vá hvað það er frábært að þú færð að vera lengur og hafa gaman!! get ekki beðið eftir fleiri myndum! þú ert rosa dugleg, knús og kossar, Elín
Matti Tali Bani skrifaði
Jæja það var mikið að þú bloggaðir og eins og venjulega þá er þetta drepfyndin lesning. Þú ætlar greinilega að versla frá þér allt vit um helgina, góða skemmtun. Ég er farinn út úr bænum og leggst út í Tindfjöllum. Bless bless
Elín skrifaði
Hæ begga mín...þú mátt endilega senda mér í smsi símanúmer eða skypenúmer hjá þér! langar svo að heyra í þér hljóðið...rödd þín er undursamleg..! miss you, kv. Elín
Anna skrifaði
Gaman að skoða nýju myndirnar:) ekkert smá flott hús sem linda býr í...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

RSS tengill