Berglind í West Hartford

01.02.2007 16:58:41 / berglind_m

Fyrstu dagarnir

hæ hæ Í dag er dagur 3 her i West Hartford og eg elska Ameriku. Fyrir utan ógeðis landamæraverðina sem tóku mig í yfirheyrslu þegar ég kom. Ég var spurð FÁRÁNLEGRA spurninga og höfðu spes áhuga á því hvort ég væri gift. Þeim fannst hringurinn minn víst eitthvað dularfullur. Fífl og fávitar!!!!!! Anyway þá komst ég loksins í gegn og Tinna og Brimar tóku á móti mér á flugvellinum í Boston og svo keyrðum við í tæpa 2 tíma hingað "heim". Við fórum í búð sem heitir Whole foods market sem selur bara lífrænt ræktaðan mat. Án efa laaaaang flottasta matvörubúð sem ég hef farið í. Þegar ég var búin að taka upp úr töskunum og svona þá fór ég að sofa þó að klukkan hafi bara verið um hálf tíu hér. Erfiður þessi tímamismunur. Svo í gær þá vaknaði ég rétt fyrir átta og við Tinna fórum með Brimar á Lollipop en það er leikskólinn hans. Svo var stefnan tekin á New York þar sem að við eyddum deginum. Þegar við komum þangað átti Tinna fund svo að á meðan þá ráfaði ég af stað í leit að H&M sem ég fann eftir smá leit á Fifth Avenue. Hún var geðveikt flott og ég dundaði mér þar þangað til ég þurfti að labba til baka á hótelið sem Tinna var á fundi. Þá tókum við taxa til Soho (held ég) þar sem við hittum vinkonu Tinnu. Eftir það var klukkan orðin frekar margt en þar sem að við rákumst á Urban Outfitters á leiðinni að veifa á taxa varð ég nú að kíkja þar inn fyrir þig Elín mín. ómægod búðin var sko awesom og einn afgreiðslugaurinn var voða hrifinn af gleraugunum mínum. Ég keypt eitthvað smotterí þar og svo tókum við leigubíl í bílastaðahúsið sem bíllinn var. Við keyrðum heim, borðuðum og svo fór ég bara að lúra. Í morgun fórum við svo með Brimar í Lollipop og ég keyrði Hummerinn heim. Ég er góður bílstjóri já. Þegar ég kom heim fór Tinna upp að vinna og ég tók til, tók úr uppþvottavélinni og ryksugaði. Það er víst ekki mikið meira að frétta í bili og ég reyni svo að fara á msn í kvöld. bæjó í bili Berglind
Anna skrifaði
OMG ..... hvað ég (öfunda) samgleðst þér:) Bara minnsta mál í heimi að "skreppa" til New York.... lucky bastard!! Endilega sendu mér sms á síminn.is þegar þú verður á msn ! Lov jú longtime þín Anna:)
Elín skrifaði
ju minn eini...ég sit hérna í tíma og hitna öll að innan!! váááá, hvað ég vildi óska að hefði verið með þér, skoðað öll flottu fötin með þér og kíkt síðan með þér á starbucks eftir að hafa átt farsælan verslunardag!! en njóttu þess í bont, bíð spennt eftir næsta bloggi og ekki má gleyma myndunum, ein mynd segir víst meira en þúsund orð...! ...leyf mér að vera með þér í anda!! vonast til að hitta þig á msn, ástarkv. Elín!
Marit skrifaði
ohh... öfund... sit hérna að mygla í alm. hj.fr tíma! Væri alveg til í að skipta í smá stund. Vertu svo dugleg að blogga svo ég hafi ástæðu til að fylgjast ekki með í tíma;) Og passaðu að kortin þín bráðni ekki vegna ofnotkunar;)
Tinna og Eva skrifaði
Blleeesssuuuððð Börglænd!!! Sem sagt þú kemur bara heim og tilbúin í húsmæðra starfið... Það verður erfitt fyrir þig að koma heim og lifa þessu venjulega lífi eftir að hafa verið í benderikjonum, akandi um á hömmer og sjoppa á hverjum degi. Við söknum þín mikið... Love The geirs systers ;o)
Anna skrifaði
Hæ elskan... ég er búin að vera í fríi í allan dag og úti að stússast svo ég var ekkert á msn! þannig að ég gat ekki komið og talað við þig..... láttu mig vita næst :)
Sía frænka skrifaði
Hi Bergy. Nice live? Nú ertu alveg að ná stílnum hjá sjónvarpsstjörnunni "okkar" akandi um á HUMMER,spurning hvort það verði bara ekki amerískur kökuþáttur þegar þú kemur heim! Njóttu lífsins í fyrirheitna landinu. Bið að heilsa frænku ef þú heyrir í henni. Kveðja Sía

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

RSS tengill