Berglind í West Hartford

09.04.2007 21:39:12 / berglind_m

sidasta vikan

Thad er svo rosalega langt sidan ad eg bloggadi sidast ad eg held ad tad se kominn timi a nokkrar linur og jafnvel myndir. Mamma var ad fara adan eftir ad hafa verid i heimsokn i taepa viku. Thad var rosalega gott ad fa mommu adeins til ad dekra vid mig og minna mig a thad hvernig verdur farid med mig tegar eg kem heim..... Ja mamma thu mannst hvad eg sagdi. Vid vorum duglegar ad fara i mollid herna thvi ad mommu leist svona lika vel a thad og gratbad um ad fara thangad i hvert skipti sem ad timi gafst, og hvad gerir madur ekki fyrir mommu sina? Eg geri allt. A fostudaginn forum vid nu samt til New York (mer tokst ad draga hana a harinu ur mallinu) med lestinni. Hun var frekar stressud allan timan ad vid faerum ur a vitlausum stad eda faerum i vitlausa lest. Vid komumst klakklaust a afangastad sem var Hilton Millenium. Thad var frekar nice og gott utsyni af 43 haed. Vid forum ut ad turistast fljotlega eftir ad vid komum thvi ad engan tima matti missa. Vid rafudum eitthvad tharna um naesta nagrenni, rifum upp kortid eins oft og vid gatum og smelltum af myndavelinni (Halli thu hefdir sko skammast thin brjalaedislega). A laugardeginum lobbudum vid svo fra hotelinu og alla leid uppi Central Park sem er sko ekki neitt sma. A leidinni vorum vid svo einmitt duglegar ad skoda kortid og benda i allar attir (Hallgrimur taktu thetta til thin) og stoppudum thar sem ad eitthvad merkilegt var ad sja. Nenntum nu samt ekki ad bida i 120 min plus eftir ad komast i Empire State enda var utsynid fra hotelinu asaettanlegt. Thetta marathonlabb tok nanast allan daginn og myndirnar sem eg set inn a eftir segja bara soguna. Mamma festi min bestu moment a filmu, takk mamma. Um kvoldid hengum vid svo a hotelinu og horfdum a SVU marathon. Svo um hadegid i gaer tokum vid svo lestina heim ad boda paskaegg. Adalrettur helgarinnar voru svo klarlega Dunkin Donut kleino sem ad voru bordadir i flest mal. I morgun forum vid svo i sidasta skipti i mallid og versludum adeins meira til ad fylla toskuna hennar mommu alveg orugglega. Thegar eg keyrdi hana svo a rutustodina og fekk ad halda a toskunni ur bilnum.... ja thad ma segja ad eg hafi litid ut fyrir ad vera ad druslast med lik. Nokkur kilo. Mest liklega sem ad eg sendi hana med heim fyrir mig.

Svo er eg bara alveg ad vera buinn med timann minn herna og hitti Onnu enn og aftur i New York a fostudaginn. Silli minn eg hlakka til. Svo a thridudagsmorguninn kem eg bara heim til ykkar sem ad saknid min svo mikid. Halli aetlar ad vera svo godur ad koma og saekja mig a vollinn. Thid hin kruttin bara berjist svo um mig, fer eftir hver bydur best.

xoxo Berglind


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 18:46:20 / berglind_m

...

Það er víst kominn tími til að skella inn smá fréttum af "ævintýrum mínum". Eitt ljótt blogg með engum bilum. Lífið gengur bara sinn vanagang hérna, Lollipop, taka til, borða ís og hanga í mollinu. Ég verð að fá mér annað áhugamál en að versla ég er ekki alveg svona rík. Síðasta laugardag skellti ég mér yfir í næsta fylki til hennar Lindu frænku og aðstoðaði hana við að flytja. Lori, Ron og Macy voru líka þarna og við kepptumst við að rúlla dúlleríi og skrautmunum inní bóluplast í metravís. Ég og Ron náðum saman á hærra plani þegar kom að því að skipuleggja fataskápinn hennar Lindu, en við flokkuðum fyrst eftir flíkum, ss peysur, stutterma bolir, langermabolir osfrv og svo eftir litum, svart grátt hvítt. Þvílík gleði og grenjandi hamingja þegar við vorum búin að þessu. Nema hvað að herðartrén voru ekki alveg nógu mikiði í stíl. Við fórum því í Wal Mart (fyrsta ferðin mín þangað) en Ron var mjög spenntur því að þessi búð er alveg í sérstöku uppáhaldi hjá honum...... eða ekki. Við fengum samt 90 stk hvít herðartré og fórum heim til að setja punktinn yfir i-ið. Við höfum hugsað okkur að fara út í fyrirtækjarekstur sem atvinnuskipuleggjendur. við erum pros (pregnant retarded ostriges eins og Lori vildi kalla það). Daginn áður hafði ég einmitt endurskipulagt tímaritahilluna hérna heima, raðaði eftir tegund blaða (tísku, hönnun, matargerð), svo nöfnum og loks í tímaröð, elsta neðst og svo nýjasta efst. Þetta veitir mér gífurlega gleði. Ég á eitthvað bágt. Í gær fórum við Brimar og Óli í parkinn í góða veðrinu í körfu. Ég er geðveikt leikin í körfuknattleik, sem sýndi sig þegar ég tapaði svona þrisvar í asna. Ég fór líka klædd tilbúin í íþróttaiðkun, í gallabuxum og balletflats. Var samt flottari en óli sem var í hvítum stuttbuxum og flíspeysu. Snýst allt um að vera pæja. Svo var Kristín Halla í heimsókn hjá Brimari í gærdag og ég bakaði almond cupkakes from scratch úr fínu cupkakes bókinni minni. Ég þarf sko ekki Betty til að framkvæma kraftaverk í eldhúsinu. Eða kannski ekki alveg kraftaverk. Þær voru samt alveg góðar. Meira hefur ekki drifið á daga mína fyrir utan það að ég fann skyr.is í wholefoods. á 2 og fimmtíu ein lítil dolla. Sambúðarverð á þessur hérna (þið verslópíur vitið hvað ég meina). Það er samt gott. Svo er tíminn minn bara að verða búinn hérna, mamma kemur eftir viku og verður yfir páskana. Við ætlum til new york, en ekki hvað, og verðum í tvær nætur á hilton millenum. nei sigrún ég er ekki að ljúga. Þegar að mamma fer heim á mánudegi þá eru bara 4 dagar í að ég fari til new york aftur, nei getur það verið, og hitti hana önnu sem að brennur í skinninu að koma og eyða peningum í bestu vinkonu sína. Afþví að ég verð nú líklega með svo lítinn farangur þá kaupir hún eitthvað fallegt til að fylla upp í tómið í töskunni minni. Ræt. Hlakka svo til að koma heim og hitta ykkur öll sem að eruð vængbrotin af söknuði, Vilhelm Leví mig dreymir þig á hverri nóttu hlakka svo til að knúsa þig. Þeir sem að ætla að skipuleggja veisluhöld til heiðurs mér, vonandi gengur allt að óskum. ég býst við glæsó..... þá er bara allt upptalið...... knús í klessu og ein ást xxxx Berglind

» 12 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 16:24:27 / berglind_m

til hamingju með afmælið!

í dag eiga 2 góðir afmæli........ Aron Þór og Perez Hilton! óska þeim báðum til hamingju og Aron fær eina blauta tungu í eyrað frá mér. Og eilífa lukku að eiga afmæli sama dag og goðið hann perez beibí. lítið að frétta nema ég er að fá nýjan gullsíma! jibbí. þúsund kossar og knús xoxoxo love you all

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 21:11:19 / berglind_m

Halli i heimsokn

Jaeja nuna er eg loksins ad mana mig upp i ad blogga um heimsoknina fra Halla og aetla svo ad setja inn myndirnar sem eg er buin ad taka undanfarna daga. (vonandi var myndavelin rett stillt pabbi). Eg er ad skrifa a vinnutolvuna hennar Tinnu thvi ad makkinn neitar ad leyfa mer ad gera bil i faerslurnar og thad er ekki isl lyklabord a tessari. Frekar fabouless allt saman.

En Halli kom sem sagt i heimsokn til min i sidustu viku og for aftur heim i gaerkvoldi. Thad var rosalega gaman ad fa hann og stjornast adeins med einhvern annan en Brimar. Djok. Eg lagdi af stad allt of seint a midvikudaginn a flugvollinn i Boston ad saekja hann og buin ad drekka allt of mikid kaffi. Eg pissadi naestum i mig a leidinni thvi ad thad var svo langt a pissustadinn. En thad hafdist og eg gat haldid leid minni afram. Svo thegar eg var komin inn i Boston tha flaektist eg ovart i vitlausan exit og endadi fyrir framan south station sem er rutustodin. Eg hljop thar inn til ad bidja um directions a Logan i einhverju securitydoti. Thad komu svona 3 kallar i gluggann bara til ad hlaeja ad mer. Eg filadi thad rosalega vel, magnad fyndid ad villast og spyrja til vegar. Svo thegar their hofdu jafnad sig af hlaturskastinu fekk eg leidbeiningarnar og keyrdi retta leid a flugvollinn thar sem ad Halli greyid var buin ad bida. Bida lengi eftir mer. A leidinni heim bladradi eg svo mikid ad eg for tvisvar inn a vitlausa freeway og vid vorum i ruglinu tharna ad flaekjast a milli I 84 og 91 i nokkurn tima. A endanum komumst vid svo heim sem betur fer. Vid forum bara ad sofa fljotlega eftir thad enda klukkan ordin frekar margt ad islenskum tima. Daginn eftir vaknadi Halli dalitid a undan mer enda ekki vanur allri birtunni herna a morgnanna. Vid forum a faetur og eg dreif Brimar i Lollipop. Tinna kom svo heim fra Indlandi seinna um morguninn og vid eyddum deginum bara herna heima i ekki neitt. Eda ju ad horfa a ANTM. Thad er nu ekki omerkilegt. Um kvoldid keyrdum vid svo i sma tima i bae sem heitir Manchester og forum i mollid thar. Thar var H&M sem var nu ekki neitt spes svo ad vid forum bara og bordudum kvoldmat a itolskum veitingastad. Eg vard sodd af thvi einu ad horfa a matinn thannig ad vid forum heim med mikinn afgang. Herna fa allir doggybag fyrir thad sem er afgangs. Eg henti thvi i ruslid adan. Svo var thad bara heim ad sofa eins og sonnum ellilifeyristhegum saemir.

A fostudeginum stod mikid til tvi ad vid akvadum ad taka bara rutu til New York. Thegar vid vorum buin ad skutla Brimari i Lollipop tha drifum vid okkur heim ad taka okkur til og hringja a taxa til ad komast a rutustodina. Hann kom nokkru sidar og skutladi okkur thangad a sidustu stundu. Vid fengum mida badar leidir og forum svo ut i ruturodina. Loksins kom svo rutan fra Springfield med fullt af folki svo ad vid gatum ekki sitid saman. Eg sat hlidina a einhverjum feitum, hvitum gaur i skopparafotum sem tok eitt og halft saeti. Minnti samt pinu a hillbilly tho ad hann klaeddi sig eins og svarti madurinn. Toff. Mer tokst samt ad sofna vid hlidina a honum, yfir biomyndinni sem var synd a leidinni. Hun var um upphaf rutufyrirtaekisins og het thvi spennandi nafni What the deaf man heard. Geeeeedveik mynd. Svo eftir taepa 3 tima af thessu komumst vid til New York. Tokum taxa fra rutustodinni a hotelid. Vitlaust hotel. Ja vitlaust hotel. Attum ad vera downtown en ekki i midtown. Eftir thetta kludur forum vid ut og veifudum i annan taxa (sem eg er rosalega god i an grins) og forum og tekkudum okkur inn a rett club quarters hotel vandraedalaust. Fengum herbergi a 15 haed sem var mjog fint bara. Akvadum ad soa engum tima svo ad vid forum ut og bordudum, keyptum kort af borginni og byrjudum ad turistast. Eg elska ad rifa upp kortid, opna thad alveg og ryna i thad eins og faviti thvi ad tha skammast Hallgrimur sin einstaklega mikid. Vantar bara bumbubudduna. Tharna i stuttu gongufaeri fra hotelinu var Wall Street svo ad vid forum thangad og skodudum kauphollina, lobbudum ut ad sjo og saum grilla i Frelsisstyttuna, lobbudum svo upp Broadway, med stoppi a Starbucks en ekki hvad, og upp ad Ground Zero. Thar eru miklar framkvaemdir i gangi svo ad thad var nu ekki mikid ad sja nema spjold sem eru timeline med atburdunum 9/11. Dalitid skrytid ad standa tharna. Eg var reyndar buin ad sja thetta ofanfra af 33 haed af Hilton en tha var myrkur. Svo toltum vid bara til baka a hotelid og pontudum room service i kvoldmat. Thad var svo kalt ad vid nenntum ekki ut. Sma sjonvarpsglap og svo bara ad sofa i thaegilegu hotelruminu.

A laugardeginum voknudum vid svo haefilega snemma til ad rolta upp i SoHo og skoda i budirnar. A leidinni rakumst vid a City Hall of NYC svo ad vid stoldrudum vid i sma stund og eg tok nokkrar myndir. Vid eyddum svo bara deginum i SoHo ad versla. Mikid af flottum budum oja. Bordudum hadegismat a trodnum McDonalds og heldum svo afram ad sjoppa. Var ordid toluvert heitara en daginn adur tannig ad eg gat bara verid a stutterma. Reyndar var svo heitt i matunarklefunum ad thad gerdi manni erfitt fyrir. A leidinni til baka a hotelid stoppudum vid a Canal street thar sem ad mer var bodid ad kaupa fake toskur. Thad var magnad ad sja hvernig thetta virkar. Allir sem eru ad selja eru i svortum north face stokkum og svo thegar eg sagdi ja vid ad kaupa sagdi konan eitthvad a kinversku i talstodina ja talstodina sina og for med okkur inn i hus, inn gang og upp stiga thar sem ad var fullt af litlum geymslum. Hun for med okkur inn i eina thar sem ad madur gat valid thad sem madur vildi. Eg valdi Coach ferdatosku og chanel tosku. Pruttadi, modgadi hana og svo nadum vid samkomulagi. Tha mattum vid ekki fara thvi ad loggan var fyrir utan nidri. Fullt af logbrjotum var haldid inni thar til ad merki var gefid i talstodina. Tha vorum vid frjals. Uppa hoteli horfdum vid a departed sem ad kostadi handlegg og adra lifrina i mer og gerdum okkur til fyrir ad fara ut ad borda. Forum a gedveikt flottan stad i meatpacking sem ad heitir Spice Market. Er eitthvad svona asiskt fusion dotari. Attum pantad kl 9 en komum adeins fyrr en thad svo ad vid bidum a barnum i smastund adur en ad bordid okkar var tilbuid. Thetta er svo flottur stadur og maturinn er magnadur ad eg maeli med ad allir profi. Thordi samt ekki ad taka myndir. Dasemd. Svo var thad bara taxi heim thar sem ad thad var adeins byrjad ad rigna.

A sunnudeginum voknudum vid um 10 thvi thad var buid ad flyta klukkunni herna um klst um nottina. Daylight saving hja kananum eda eitthvad thannig. Vid pokkudum saman, tjekkudum okkur ut og settum toskurnar i geymslu. Tokum svo leigubil upp ad empire state til ad dast ad henni fra jordinni nenntum ekki ad bida i klukkutima til ad komast upp. Akvadum frekar bara ad labba a Times Square og skoda thar. Eg myndadi skiltin og svo forum vid inni staersu ToysRus i USA sem er med parisarhjoli i midri bud. Eg tok myndir thar eins og brjalud vaeri. Thegar eg sa barbideildina var eg dalitid bitur uti mommu fyrir ad hafa ekki farid med mig thegar eg var 7. Skamm mamma. I stadinn verd eg ad fara med hana. Kiktum i Virgin megastore og lobbudum svo uppad Rockafeller Center, tokum nokkrar myndir og forum svo a 5th avenue. Eg tok myndir af Gucci, Louis Vitton og fleiru skemmtilegu sem tid faid ad sja a myndunum. Svo var bara kominn timi til ad na i toskurnar og fara a rutustodina. I thetta skiptid fengum vid saeti saman og keyrdum ut ur borginni i gegnum Harlem. Gledi. Thegar vid komum heim forum vid ut ad borda og svo i stop and shop ad kaupa ben. og jerry. Godir saman. Forum heim ad horfa a dvd en Halli sofnadi. A manudaginn skellti eg mer i thrif og svo lobbudum vid med Brimar nidri bae ad kaupa is. i goda vedrinu og solinni. Thad er ad koma vor herna. Naest a dagskra var Target sem ad slo i gegn med hreinlaetisvorum, barnaskodeildin i Sports Authority og svo mollid. Keyptum sma til ad senda heim med Halla og forum svo ad borda a Ruby Tuesday. Jommi. Forum svo heim og horfdum a Babel sem mer fannst nu bara nokkud god. A tridjudaginnn var svo kominn timi fyrir Halla ad pakka saman ollu sinu i hermannatoskuna hans pabba sem ad gleypti vid ollu sem i hana var sett. Um 4 keyrdi eg hann svo a rutustodina og kvaddi hann med harmi. Eda svona.....

I dag var svo bara venjulegur dagur nema thad er naestum 20 stiga hiti. Grenjandi hamingja. Vid Brimar, Salaar, mamma hans Salaar og litli brodir forum i parkinn i sma skemmtilegheit seinnipartinn. Svo er eg bara buin ad vera ad skrifa thessa faerslu i svona 3 klukkutima. Thid erud frekjur. Set svo inn myndirnar i kvold a medan eg horfi a ANTM.... love it.

Astarkvedjur og knus til ykkar, love you all!!

Berglind

p.s. andrea sif til hamingju med afmaelid saeta. xoxo


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 15:32:36 / berglind_m

njú jork

við ástmaður minn erum farin til njú jork yfir helgina..... sjóðheitt slúður og spennandi fréttir þegar við snúum aftur. ekki missa af næsta þætti í spennuþáttaröðinni!! one love til ykkar allra! Berglind og Halli sem blogga sem par

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 00:18:59 / berglind_m

Subbulegi-Steve

Hér er sagan af því þegar ég lenti í fáránlegasta atviki lífs míns. Áðan skrapp ég á pósthúsið til að senda pakka til Íslands. Ekki að það sé eitthvað mikið mál en ég var ekki alveg með á hreinu hvar pósthúsið er svo að ég ákvað að spurja til vegar. Þar sem að fólkið hérna er svona agalega kammó stoppaði ég bara næsta einstakling sem ég sá. Nokkrum andartökum seinna kom í ljós að það var Steve. Plebbalegi Steve. Jáh hér kemur samtalið: B: excuse me, could you tell me where the post office is? S: uuuuhm the post office (hugsar sig um) I'm drawing a blank here, but it think it is down this way. Althogh I don't want to send you the wrong way. B: oh its ok I think it is on the same street as Starbucks. S: are you not from around here? B: No I´m from Iceland. S: Oh Iceland. Have you been here for a long time? B: About a month. S: How do you like it here? B: I like it a lot, I love it. S: Oh and are you staying for long time. B: No I am on a 90 day limit. S: You are so beautiful you should try to stay longer, we need more people like you. B: (vaaaaaandræðaleg) thank you. S: My name is Steve B: You can probably not say my name. S: I’m good with that stuff, tell me. B: (ó men hvað þetta er hallærislegt) Berglind. S: Parklin! Yes. B: (fáviti) yes that’s right. S: So what are you doing here? B: I am babysitting. S: do you like it? B: (farin að hugsa hvort það sé eðliegt að spjalla svona mikið við ókunnuga) Yes I like it very much. S: (farinn að glápa í líklega áttina að pósthúsinu) I am going to að meeting now, will you be here for a while? B: (held að ég eigi að bíða á meðan hann fari á fundinn svo hann geti fylgt mér á pósthúsið en nei….). S: Because I was wandering if you wanted to meet me later for coffie. B (algörlega í mestu kleinu lífs míns) No, I’m sorry I can’t, I’m just dropping this package off. (díseeeeees kræst er hann ekki að djóka!). S: OK well good luck at the post office. B: thank you so much bye. (hálfhleyp í burtu). Kannski er þetta normið hérna en vá hvað mér fannst þetta kjánalegt. Hann var líka örugglega 35! elín, kleinusnúðurinn minn, þessi færsla er tileinkuð þér! ein ást Berglind

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 18:12:00 / berglind_m

nýjar myndir

setti inn myndir frá afmælinu hans Óla og heimsókninni til Lindu. Ferðasagan: Búðir, búðir, búðir. amen p.s. Halli, ég elska þig!

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 18:02:05 / berglind_m

á lífi

Jább ég er á lífi, þið eruð svo kröfuharðir lesendur að ég verð að hamast við að blogga til að allir séu ánægðir. Síðustu helgi vorum við bara heima og ég fór eins og vanalega í mollið á laugardaginn. Fór í útsöluhornið í Forever 21 og keypti mér 5 flíkur og 3 armbönd á 35 dollara. Besta útsala sem ég hef lent í. Svo keypti ég líka dvd diska fyrir Óla sem eru svoooooo fyndnir. Foamy er góður. Í vikunni er búið að vera frí í Lollipop svo við Brimar erum búin að vera dugleg við að hanga heima á náttfötunum. Á mánudaginn fór hann nú samt á playdate hjá Salaar og skemmti sér vel. Á þriðjudaginn kom svo Salaar í heimsókn hingað á meðan mamma hans fór til læknis. Það var svaka fjör hjá strákunum og þeir rústuðu sólstofunni algjörlega. Svo lenti ég í því í vikunni að þurfa að velja úr dömubinda og túrtappahillunni í búðinni, úrvalið hérna er svo brjálæðislegt að það gerir manni erfitt fyrir. En það bætti úr skák að í sömu búðarferð keypti ég Oreoís. Hann er góður. Svo góður. Í gær ryksugaði ég svo og þurrkaði af á meðan Brimar fór út í garð að leika sér. Eftir hangs fram eftir degi drifum við okkur svo út í bíltúr og fórum í Sports Autority að kaupa jógamottu og skoða hitt og þetta. Í leiðinni fórum við í Borders sem er bókabúð að kaupa afmælisgjöf handa Óla sem átti afmæli í gær. Þar er hægt að velja sér endalaust af bókum og blöðum og setjast svo niður á kaffihúsið og skoða það sem hugurinn girnist. Brimari langaði svo í hot chockolate svo að við settumst aðeins niður og trufluðum hitt fólkið. Hann vildi nefnilega sleikja rjómann ofanaf bollanum en þá klíndi hann því í sig, mig og fötin sín. Hitt fólkið fílaði okkur tæplega. Svo þurtum við að drífa okkur heim að pakka inn gjöfunum. Óli fékk æfingabol frá Brimari, æfingabekk og lóð frá Tinnu og bók frá mér. Eftir pakkaæsinginn sem að olli því að Brimar hagaði sér eins og hann væri á örvandi fórum við út að borða á kínverskan veitingastað í Glastonbury. Við áttum pantað borð en komum allt of seint vegna þess að karlmenn biðja ekki um directions þegar þeir vita ekki hvert þeir eru að fara. En við komumst á réttan stað á endanum. Ég fékk fekar sterkt karrý eitthvað en það var gott. Brimar æddi um veitingastaðinn að taka myndir af öllu, frá fiskunum í búrinu til þjónanna. Það var rosalega gaman hjá okkur, sérstaklega þegar Óli var farinn að upplýsa uppá hvað hann skrifar til að koma Tinnu í klippingu.... Þjónarnir héldu að við værum rússnesk. Já ég er svo kúluvarparaleg djísess. Þegar við komum heim og ég alveg í spreng þá vorum við lyklalaus. Hummerinn er í viðgerð og húslyklarinir eru á bíllyklunum en þar sem á við vorum á lánshummer þá komumst við ekki inn. Ég skottaðist í bakgarðinn að pissa áður en við keyrðum til Tóta og Álfhildar að ná í aukalykla. Loksins komumst við inn svo að ég blaðaði aðeins í Vogue og fór svo að sofa. Í morgun erum við svo bara búin að vera að dúlla okkur og ég að undirbúa mig andlega fyrir ferðina í Toys R us sem ég lofaði í gær. Um helgina ætla ég svo að heimsækja Lindu og "reyna" að kíkja aðeins að versla. Ætlum svo kannski að kíkja í heimsókn til Maine. Ég reyni að taka myndir eins og vitleysingur og setja þær inn sem fyrst. Svona fyrst ég er búin að læra það. Verður vonandi minna af kökumyndum í þetta skiptið. Svo á sunnudaginn fer Tinna til Indlands í 10 daga svo við verðum bara 3 í kotinu. Það er svo komið í ljós að ég verð aðeins lengur hérna í Ammríku en til stóð eða til loka mars eða byrjun apríl. Ég er svo fáránlega skemmtileg, fyndin og æðisleg að þau vilja eðlilega ekki að ég fari. Þannig að þið sem ætlið að heimsækja mig getið farið að bóka. Tútúllú Skotta P.S. svo er síðasti O.C. þátturinn í tívíinu í kvöld. Ég verð hérna með titsjúið sorgmædd yfir því að þetta sé síðasti þátturinn EVER!

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 17:18:38 / berglind_m

loksins myndir

setti loksins inn myndirnar..... setti líka password á albúimið svo að hafiði samband uppá lykilorðið eða biðja um það í kommentunum.

» 8 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 23:53:53 / berglind_m

nýjar fréttir

Í gær, á Valentínusardaginn, sýndi kaninn sitt rétta andlit. Í fyrrinótt byrjaði aðeins að snjóa og það var smá föl á götunum í gærmorgun. Svo kom pínu meiri snjókoma og þá fór allt í steik, skólunum var lokað og fólk keyrði um göturnar á 5 mph með hazardljósin á. Ég sem að er náttúlulega á jeppa og svo veðruð (á leiðinni að verða veðraðari á meðan þú ert heima í hitastigi pabbi, já ekki í mínus 30 í Afghanistan lengur) fannst þetta nú ekki mikið mál og brunaði með Brimar í Lollipop. En NEI hann var lokaður. Ég var svo hneyksluð að ég vissi ekki hvert ég ætlaði. Svo ég brunaði með Brimar með mér í klippingu. Gaurinn sem klippti mig var ekkert að taka stjórnina neitt eins og ég ætlaðist til, setti einhverjar ósýnilegar strípur í mig og krullaði mig svo með bursta svo ég fór út eins og amma einhvers alltof mörgum dollurum fátækari.Á meðan dvölinni stóð tókst Brimari líka að rífa niður einhverja hillu. Ég var í vondu skapi í allan gærdag. Þegar við komum heim fórum við Brimar bara að hangsa og horfa á skrípó. 
Í gærkvöldi fórum við svo út að borða. Ég hélt að við ætluðum bara að sækja takeout en við enduðum á japansk/kóreskum fusion stað og ég var á náttfötunum. Stórkostlega smart. Og stígvélum. Staðurinn hét Ichiban eins og japanski varaliturinn sem Joey í Friends auglýsti. Ég flissaði aðeins yfir því á frekar miklum bömmer samt þarna innan öll pörin á rómantískum Valentínusardagsstefnumótum. Eftir að hafa flett í gegnum matseðilinn taldi Óli mig á það að smakka sushi. Ég ákvað að skella mér á það og það kom bara skemmtilega á óvar. Var reyndar búin að drekka í mig smá kjark. Þjóninn okkar var algjört bíó. Svona steríótýpu Japani með útstæðar tennur, gleraugu, alltaf að hneigja sig, segja thank you og var fáránlega lélegur í ensku. Kom tvisvar sinnum með eitt glas af hvítvíni þegar við vorum búin að panta eina flösku!
En já sushi er ekki svo slæmt.
Svo í morgun vaknaði ég um 7 til að fara að keyra Óla í vinnuna og koma svo Brimari í Lollipop. Lollipop byrjar kl 9 en útaf "öllum snjónum" byrjaði hann kl 10. Við fórum þá bara á Dunkin Donuts og ég gaf barninu kleinuhring í morgunsárið. Skutlaði honum svo loksins og fór heim að horfa á 24. Þegar við komum heim var ég orðin svo leið á að detta nánast alltaf á hausinn í tröppunum fyrir utan að ég fór og náði í skófluna. Snjórinn hérna er frekar harður svo hamaðist á helvítis snjónum í minikjól og sumarjakka eins og fáviti. Á endanum náði ég þessu í burtu. Ákveðnin er mér stundum í hag.

Svo í dag er ég búin að baða Brimar, taka til og setja í vél. Og horfa á skrípó og borða sykrað popp. Ógeðsleg leðja. Ég fer til Lindu í heimsókn um þarnæstu helgi og verð í 2 nætur. Þá gæti kortið mitt bráðnað.....

Og þið sem eruð að fara á djammið um helgina, kannski fer ég bara á skíði til Vermont. Lovely!

Og þessar blessuðu myndir koma inn um leið og ég fæ leiðbeiningar um hvernig ég á að athafna mig á macintosh! 

knús í klessu

Berglind

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 17:50:28 / berglind_m

New York

Núna fer alveg að koma að því að ég setji inn myndir! Í gær fórum við öll til New York því að Tinna var að hitta vinkonur sínar. Við lögðum af stað um hádegið og vorum komin um 2 eða 3 leytið til borgarinnar. Við fórum til Soho til að skila Tinnu af. Svo keyrðum við aðeins um og lögðum bílnum í Meat Packing District. Því miður rakst ég ekki á Samantha. Við töltum aðeins þar um, fórum í verslunarmiðstöð sem var gerð upp, hún er frekar svona hrá, húsið var yfirgefið lengi. Þar voru aðallega veitingastaðir, bakarí og svo danskennsla bara á miðjum gangi. Frekar fyndið svo að ég smellti af einni mynd fyrir ykkur heimtufrekjurnar. Eftir að við löbbuðum þar í gegn fórum við í department store sem heitir Jefferey's. Þar inni var svo flott að ég var frá mér numin af fögnuði. Þarna voru Manolo Blahnik, Jimmy Choo, Gucci, Prada og síðast en ekki síst Christian Louboutain skór. Þá lá við að ég þyrfti að þerra tár af hvörmum mínum, þvílík fegurð og glæsilegheit!!!!! Ég fór þaðan út svífandi á rósrauðu skýi. Svo löbbuðum við aftur í bílinn og keyrðum um borgina. Við keyrðum Broadway, á Times Square, 5th Avenue og svo meðfram og í gegnum Central Park. Þá var klukkan orðin sirka 5 svo að Óli var svo góður að keyra mig aftur í Soho því mig langaði að skoða aðeins í búðir. Ég fór í svona ódýrari Armani búð og keypti nú ekkert handa mér heldur nokkuð góðan jakka fyrir Halla. Hann verður nú eitthvað að fá fyrir sinn snúð fyrst að ég var svona vond að fara frá honum. Ég rápaði svo aðeins þarna um og keypti mér aðeins fleiri nærbuxur (ég er búin að kaupa nokkuð margar hérna) því það er nú nauðsyn. Það var frekar kalt þannig að ég tók stuttan hring í Bloomingdales og skoðaði Diane Von Furstenberg kjóla sem var ekki slæmt. Svo hringdi ég í driverinn og beið á Starbucks eftir að þau kæmu. Þá fórum við í financial district á Hilton Millenium hótelið þar sem að ég og Brimar eyddum kvöldinu á 33 hæð með útsýni yfir Ground Zero (og alla borgina)á meðan Tinna og Óli fóru út að borða. Þar pöntuðum við ís í room service og gláptum á risa flatskjá. Rúmlega eitt komu svo Tinna og Óli og sóttu okkur og við keyrðum heim. Ég gerði mitt besta að taka myndir af þessu helsta fyrir ykkur en það var dálítið erfitt úr bílnum.
Um næstu helgi fer ég svo kannski í heimsókn til Lindu og hún ætlar með mig til Maine sem er víst shoppers heaven. Sem er ekki slæmt fyrir okkur Molly og Molly 3rd. Mig hlakkar voðalega mikið til þess, gaman að hitta Lindu aftur.

P.S. ég hélt að færslan hefði strokast út og var á barmi örvæntingar en þá bara var hún hérna! sjúkk!

Love you all 

Berglind

» 7 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 22:59:55 / berglind_m

Nefsprey og Crest Whitestrips

hæ..... ég hef nú ekki frá mörgu að segja í dag en pabbi vildi endilega fá eitthvað nýtt. Hér er alltaf sami skítakuldinn og ég vil kenna honum um kvefið og leiðindin sem eru að pirra mig. Vegna þess þá skellti ég mér í apótek í gærmorgun eftir að ég var búin að skutla Brimari á Lollipop. Ég fór niður á Farmington og fór inn. Þá byrjaði leitin að kvefhillunni sem ég fann eftir nokkra leit. Þá kom að því að velja nefsprey.... og það var ekki auðvelt! Grilljón tegundir af spreyjum í ýmsum stærðum og gerðum. Þegar ég var búin að velta þessu fyrir mér nokkra stund þá valdi ég bara eitthvað sem kostaði ekki mikið - hagsýnin alltaf. Svo fór ég á stúfana til að finna oral hygene lane til að athuga hvað crest whitestripes kostar þar. Þar var á tilboði CWS preminum og það kostaði held ég 29 dollara. Ég hafði það svo bak við eyrað þegar ég fór í Stop and Shop seinna um daginn með Brimari að kaupa nesti og fleiri nauðsynjar. Sem eru Ben & Jerry's, cup cakes og red bull! Eftir mikið ráp milli hillna þar þá fann ég þetta loksins og þar kostuðu herlegheitin um 30 dollara. Þar hefurðu það Elín, ég kaupi Crest í apótekinu. Í gærkvöldi horfðum við svo á Little Miss Sunshine og ég flissaði nú meira en ég bjóst við. Hún kom mér nokkuð á óvart og hún var hin besta skemmtun. Fór í framhaldi af því að hugsa um The Office og þáttinn sem Michael átti afmæli, þá hló ég inní mér og smá utaná mér. Respect the Birthday man! Svo í dag fór ég á nissaninum með Brimar og ég hélt að ég yrði bensínlaus á leiðinni. Svo kom í ljós að þetta eru bara eiginleikar bílsins því hann er jú bilaður. Fer í viðgerð á morgun. Eftir að ég fór með Brimar þá kom ég heim og þreif baðherbergið uppi. Á tímabili var ég komin með eyrnapinna við þrifin. Anna ég veit að þú elskar hvað ég er mikið neat freak!! Svo moppaði ég, setti í uppþvottavélina og þvottavélar. SpEnnó. Núna er klukkan hjá mér að verða 6 og við ætlum út að borða í kvöld, best að fara og gera mig til! Tútúlú p.s. ég veit ekki alveg hvernig þetta er með að gera bil á milli lína, það virðist ekki virka neitt svo vel. Er ennþá að completa my mac skills.

» 11 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 14:48:24 / berglind_m

Ég hóstaði.......

Sögustund. Varúð, þið gætuð hlegið upphátt! Í gær ákváðum við Tinna og Brimar að labba niður í bæ á Starbucks. Nóttina áður hafði Brimar reyndar verið eitthvað slæmur í maganum og ældi einusinni en var svo bara hress um morguninn. Við fórum út klædd eins og heimskautafarar því það er frekar kalt núna. Þegar við komum á Starbucks þá var frekar mikið að gera svo að við plöntuðum okkur svona aðeins í kringum borð sem var búið að taka frá einn stól. Tinna kunni ekki alveg við að setjast bara við borðið hjá manninum svo að Brimar og hún sneru hálfpartin frá því en kaninn er nú svo kurteis og allt það að hann sagði að Brimar mætti nú aldeilis sitja við borðið hjá sér. Maðurinn var með te, NY times og kökusneið. Brimar fylgdist mjög grannt með honum og þegar hann var nýbúinn að kreista tepokann og var rétt að byrja á teinu og búinn að taka einn bita af teinu þá frussaðist kakó útúr Brimari yfir borðið, teið, kökuna og blaðið hjá manninum. Fyrst hélt ég að Brimar hefði gubbað yfir manninn og maðurinn hélt það líka. Tinna fór og náði í tissjú og spurði svo Brimar hvað hefði eiginlega komið fyrir. Eina sem hann gat sagt var: Ég hóstaði bara. Aumingja maðurinn hélt að það hefði verið ælt yfir sig, það var allt í kakói. Tinna bauðst til að kaupa handa honum nýtt te og nýja köku en hann afþakkaði það nú. Starfsfólkið sá samt um það að gefa honum nýtt. Tinna sorríaði okkur í allar áttir og svo komum við okkur bara út. Við vorum næstum farnar að hlæja beint upp í opið geðið á greyið manninum og hlógum alla leið heim. Ég hlæ ennþá bara við að skifa þetta. Muniði sem sagt að það er ekki gott að hósta með munninn fullan af kakói!! Annars er lítið að frétta, nema við fórum í bíó í gær á The pursuit of happyness með Will Smith. Ágæt mynd en enginn óskarsverðlaunaleikur hjá honum. Svo fórum við á McDonalds í fyrsta skipti síðan ég kom. Hann var ágætur. Svo í morgun þegar ég fór út í bíl til að keyra Brimar í Lollipop þá var 12 gráðu frost, ógeðiskalt. Og svo villtist ég á leiðinni en þar sem að ég er svo bráðvel gefin þá rataði ég samt á Lollipop. Gullstjarna fyrir mig. Kaldar kveðjur frá fyrirheitna landinu Berglind

» 9 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 15:40:08 / berglind_m

Mollið

jæja þá er komið að því að segja frá dásamlega mollinu sem er hérna í towninu. Ég fór þangað í gær og ó mæ hvað það var mikið af fallegum búðum, ég íhugaði að flytja bara í Victoria's Secret. Ég fékk bara að ráfa ein í einn og hálfan tíma þegar við Óli vorum búin að fá símakort fyrir mig. Það virkar reyndar bara innan Bandaríkjanna svo að ég er ennþá bara með íslenska númerið í mínum síma. Hann er læstur svo að cingular kortið virkaði ekki í honum þannig að mér var bara reddað öðrum síma fyrir ameríska kortið. En já mollið var mjög skemmtilegt og allskonar flottar búðir eins og forever 21, american eagle og abercrombie & fitch. Svo stóðst ég ekki mátið að kíka í Baby Gap fyrir hann Villa minn, só kjút. Eftir allt þetta var farið að rjúka aðeins úr kortinu svo að ég ákvað að drífa mig heim. Þegar ég kom heim þá var kvöldmatur og svo bara fór ég að sofa um 10 leytið, ég er eitthvað voða lengi að venjast mismuninum á tímanum. Þessi ferð mín í mollið er sem sagt hápunktur undanfarinna daga og ekki frá mörgu öðru að segja nema á föstudaginn bökuðum við Brimar Betty. Það þurfti náttúrulega að kaupa í það svo við fórum í Stop and Shop og leituðum mikið þar til að rétta hillan fannst. Þetta var í fyrsta skipti sem ég baka í ofni sem er stilltur á farenheit svo að kakan var eitthvað sló að bakast svo að eftir hækkun upp á 400 F og tæpan klukkutíma í ofninum kláraðist þolinmæði mín. Kakan var samt góð með BC chockolate frosting. ég á framtíðina fyrir mér sem ammrísk húsmóðir! Dagurinn í dag er ekki ákveðinn neitt, klukkan er bara hálfellefu hjá mér núna, svo að ef að ég fer á vit ævintýranna þá skrifa ég æsispennandi færslu um það sem fyrst. Sakna allra á Íslandi fullt og sendi kannski pósta á ykkur VIP í kvöld. Berglind (Molly the third)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 16:58:41 / berglind_m

Fyrstu dagarnir

hæ hæ Í dag er dagur 3 her i West Hartford og eg elska Ameriku. Fyrir utan ógeðis landamæraverðina sem tóku mig í yfirheyrslu þegar ég kom. Ég var spurð FÁRÁNLEGRA spurninga og höfðu spes áhuga á því hvort ég væri gift. Þeim fannst hringurinn minn víst eitthvað dularfullur. Fífl og fávitar!!!!!! Anyway þá komst ég loksins í gegn og Tinna og Brimar tóku á móti mér á flugvellinum í Boston og svo keyrðum við í tæpa 2 tíma hingað "heim". Við fórum í búð sem heitir Whole foods market sem selur bara lífrænt ræktaðan mat. Án efa laaaaang flottasta matvörubúð sem ég hef farið í. Þegar ég var búin að taka upp úr töskunum og svona þá fór ég að sofa þó að klukkan hafi bara verið um hálf tíu hér. Erfiður þessi tímamismunur. Svo í gær þá vaknaði ég rétt fyrir átta og við Tinna fórum með Brimar á Lollipop en það er leikskólinn hans. Svo var stefnan tekin á New York þar sem að við eyddum deginum. Þegar við komum þangað átti Tinna fund svo að á meðan þá ráfaði ég af stað í leit að H&M sem ég fann eftir smá leit á Fifth Avenue. Hún var geðveikt flott og ég dundaði mér þar þangað til ég þurfti að labba til baka á hótelið sem Tinna var á fundi. Þá tókum við taxa til Soho (held ég) þar sem við hittum vinkonu Tinnu. Eftir það var klukkan orðin frekar margt en þar sem að við rákumst á Urban Outfitters á leiðinni að veifa á taxa varð ég nú að kíkja þar inn fyrir þig Elín mín. ómægod búðin var sko awesom og einn afgreiðslugaurinn var voða hrifinn af gleraugunum mínum. Ég keypt eitthvað smotterí þar og svo tókum við leigubíl í bílastaðahúsið sem bíllinn var. Við keyrðum heim, borðuðum og svo fór ég bara að lúra. Í morgun fórum við svo með Brimar í Lollipop og ég keyrði Hummerinn heim. Ég er góður bílstjóri já. Þegar ég kom heim fór Tinna upp að vinna og ég tók til, tók úr uppþvottavélinni og ryksugaði. Það er víst ekki mikið meira að frétta í bili og ég reyni svo að fara á msn í kvöld. bæjó í bili Berglind

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill